Við skipuleggjum gjarnan afsláttar- og kynningarkvöld fyrir hópa. Saumaklúbbar, prjónaklúbbar, vinnustaðahópar, frænkuklúbbar… allir velkomnir! Hafið samband og bókið tíma! Þið veljið tímann sem hentar og við sjáum til þess að tekið verður vel á móti ykkur. Í boði er kynning á garni, prjónhönnuði eða örnámskeið í prjóntækni. Ykkar er valið.

Hafið samband við [email protected] eða í síma 551 8258 eða 659 6686.