Nálahús með 2 grófum jafanálum. Bogni oddurinn auðveldar þræðingu í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel.
Nálarnar eru Ø 2,5 x 7 mm á lengd.
Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
Nálahús með 3 jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel.
Nálarnar eru nr. 15 (2 stk.) og nr. 17 (1 stk.).
Fleiri nálahús með nálum fáanleg:
Nálarnar eru með gyllt auga. Efst er U-laga op sem strekktur þráðurinn er lagður ofan á og smokrað í gegn. Þannig þræðist nálin án þess að stinga þurfi í gegnum nálaraugað. Sparar tíma og auðveldar þræðingu.
Nálarnar renna vel í gegnum efni.
Nálarnar eru sérstaklega hertar svo þær bogna hvorki né brotna.
Sweet 'n Sharp Macaron er nálasegull sem heldur nálum og títiprjónum á sínum stað. Ekki bara sætur heldur líka nytsamlegur. Oddinum á saumnál er stungið í mjúka púðann í raufinni til að brýna hana.
Fæst í tveimur litum:
Þræðir grófari og fínni saumnálar auðveldlega.
Nálarauganu er stungið niður í gat, tvinninn lagður þvert yfir, ýtt á takka og nálin þræðist! Auðvelt, þægilegt og tímasparandi.
Passar fyrir flestar Clover saumnálar (0.51-0.89 mm) sem eru fyrir alls konar bútasaum og handsaum.
Prjónahaldari; gormur sem vefst þétt utan um sokkaprjónana eða jafnvel 2 prjóna. Lagar sig að mismunandi grófum prjónum. Auðvelt að teygja og gefur vel eftir en heldur samr vel við. Hægt að nota utan um fleira en prjóna.
Fæst í tveimur stærðum.
CLOVER prjónamerki eru létt og þægileg í notkun. Þessi eru lokuð og fara utan um prjóninn og fylgja honum upp verkefnið.
20 stk. í pakka, 10 minni og 10 stærri í tveimur litum.
Prjónamerki úr mjúku efni. Mjög þægileg í notkun; sett upp á prjóninn til að merkja byrjun umferðar, ákveðnar mynstureiningar, úrtökur, útaukningar o.fl.
Innihald: 30 merki í 2 litum, 10 minni og 20 stærri.
Prjónastærðir
Prjónamerki úr mjúku efni. Mjög þægileg í notkun; sett upp á prjóninn til að merkja byrjun umferðar, ákveðnar mynstureiningar, úrtökur, útaukningar o.fl.
Innihald: 20 merki í 2 litum.
Fyrir prjónastærðir
Prjónatappar úr sílíkóni sem koma í veg fyrir að lykkjurnar renni fram af prjónunum.
Minni stærð: Fyrir prjóna 2 mm - 4,5 mm (#333-S).
Stærri stærð: Fyrir prjóna 3,75 mm - 6,5 mm (#333-L).
4 stk. í pakka.
1.190kr.Original price was: 1.190kr..833kr.Current price is: 833kr..
YO YO Quick Maker eru skapalón til að búa til hringi, bæði sníða þá og sauma svo rykkingin og sporin lendi á réttum stað. Þessi aðferð er vinsæl í Brasilíu og hefur borist um bútasaumsheiminn. Hægt er að búa til heilu teppin eða nota til skrauts á púða eða annað.
Skaplónin koma í mismunandi stærðum.
2.270kr.Original price was: 2.270kr..1.589kr.Current price is: 1.589kr..
Segularmband sem geymir nálar, títuprjóna og jafnvel lítil skæri á meðan saumað er. Þægilegt í notkun og sparar vinnu og tíma. Raufin í miðjunni auðveldar að ná takinu af nálunum/títuprjónunum.
Ef eitthvað dettur á gólfið eða ofan í skúffu er leikur einn að halda seglinum nálægt og allt sem loðir við segul hoppar upp í hann!
Búið til skúfa með alls konar garni!
Hægt að nota útsaumsgarn, prjónagarn eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sniðugt að eiga skúfa til að merkja/skreyta skærin og önnur áhöld.
Hér er PDF skjal með leiðbeiningum um hvernig skúfarnir eru búnir til með þessu áhaldi: SKÚFAGERÐ.

CLOVER 45mm skurðarblað í skurðarhníf. 1 stk. í pakka.
Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa.
Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum.
Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu.
CLOVER 18mm skurðarblað í skurðarhníf. 2 stk. í pakka.
Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa.
Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum.
Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu.
Einnig er hægt að fá 5 blöð í pakka.