• Það hefur verið mikill áhugi á leikfangahekli. Næsta námskeið verður í haust. Skráið ykkur endilega til að komast á listann. Um leið og við náum lágmarksfjölda setjum við námskeið í gang. 3 skipti – kl. 18 - 20 Heklnámskeið þar sem kennt er leikfangahekl eftir vinsælu bókinni CUTE CROCHETED ANIMALS eftir Emma Varnam. Bókin fylgir með ásamt 3 hnotum af Volare DK garni, í litum að eigin vali, sem hentar mjög vel í leikfangahekl.
    Þetta hefur verið mjög vinsælt námskeið hjá okkur og það er ástæða fyrir því. Þetta eru ótrúlega sæt dýr og mátulega stór, en bókin hefur því miður verið ófáanleg lengi. Okkur tókst að ná í nokkur eintök og bjóðum því loksins aftur upp á þetta námskeið.
    Þið lærið alls konar hekltækni, en líka að fylgja hekluppskriftum á ensku. 15% afsláttur í Storkinum á meðan námskeiðið varir. 
    Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum: Heklunálar 3 - 3,5 mm.
    Kennari: Sólveig Sigurvinsdóttir
  • somdn_product_page
    Fullorðinssokkar fyrir URTH Uneek randalitaða sokkagarnið. Þessir sokkar eru prjónaðir frá legg og niður.
    Prjónastærð er 2,25 - 2,5 mm.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku.
  • somdn_product_page
    Fullorðinssokkar fyrir URTH Uneek randalitaða sokkagarnið. Þessir sokkar eru prjónaðir frá tá og upp en þannig er hægt að nýta garnið best.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku.
  • somdn_product_page

    REINDEER JACKET eða HREINDÝRA JAKKI er uppskrift frá Rowan úr Felted Tweed garninu þeirra sem er mjög létt og hentar í tvíbandaprjón. Fæst í yfir 50 litum.

    Peysan er prjónuð í stykkjum með tvíbandaprjóni í tveimur litum og er með sjalkraga. Litirnir og mynstrið gera hana vetrarlega og jafnvel jólalega.

    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku.
  • somdn_product_page
    Barnasokkar með tvíbandaprjóni.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • somdn_product_page
    Einfaldir sokkar á börn og fullorðna með bandhæl.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • somdn_product_page
    RANDALÍUS barnavettlingar með hliðarþumli. Sama hvor er á hægri og vinstri!
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • somdn_product_page
    Lestarsokkarnir vinsælu er frá Finnlandi. Með uppskriftinni fylgir sagan um tilurð sokkanna sem er mjög áhugaverð. Þetta er vinsæl flökkuuppskrift í Finnlandi og núna líka á Íslandi. Vinsældirnar eru skiljanlegar því sokkarnir eru einfaldir í prjóni, uppskriftin auðlærð og verkefnið þægilegt að hafa með á ferð. Þá eru sokkarnir sjálfir góðir og sérstaklega um það rætt að þeir tolli svo vel á fætinum á litlum börnum.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • Sokkamál til að mæla lengdina á sokkbolnum frá hæl áður en byrjað er á úrtöku á tátotunni. Sniðugt þegar verið er að prjóna til gjafa. Sokkamálið mælir líka prjónastærðirnar! Laserskorið úr við.
    • Nálarnar renna vel í gegnum efni.
    • Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
    • Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
    • Nálaroddarnir eru bljúgir og hentar í úttalinn útsaum eða frágang í prjóni eða annarri garnvinnu.
    • Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
Go to Top