-
Höfundur: Andie Solar Útgefandi: C&T Publishing (2020)Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 410 g | Mál: 203 x 254 mm Punch Needle bókin dregur nafn sitt af áhaldinu sem notað er við þessa tegund af útsaumi. Grófri nál, sem er hol að innan, og með skafti er þrýst í gegnum vel strekkt efni, hæfilega gisið svo nálið komist í gegnum efnið, en nógu þétt ofið svo það haldi vel við garnið. Þráðurinn liggur í gegnum holu nálina og hægt er að mynda lykkjur með garninu eða klippa þær upp og mynda flos. Höfundurinn Andie Solar sýnir með vinnulýsingum aðferðina og 13 litrík og vel útfærð verkefni á mismunandi erfiðleikastigum. Perfect for absolute beginners and the projects are kid-friendly. Hér er sýnishorn af innihaldi bókarinnar: Search Press
-
Höfundur: Katarina Brieditis & Katarina Evans Mjúkspjalda | 48 bls. Tungumál: SænskaÞyngd: 150 g | Mál: 170 x 240 mmÖll eigum við uppáhaldsflíkur sem kemur gat á eða aflagast vegna mikillar notkunar, fallegar flíkur sem þarf að endurnýja og gera við. Með því að gefa sér smá tíma og kærleik er hægt að styrkja, laga og setja persónulegan stíl á flíkina með skemmtilegri handavinnu. Lappa er smárit í flokknum Lappa & Laga sem sænska heimilisiðnaðarfélagið gefur út. Þar er sýnt hvernig hægt er að gera við gallabuxur, skyrtukraga, peysur, fóður og fleira. Textílhönnuðurinn Katarina Brieditis og meistaraútsaumskonan Katarina Evans eru e.t.v. ekki uppteknar af því að sýna einföldustu leiðina til að gera við, en örugglega þá skemmtilegustu. Með því að nálgast vandamálið á skapandi hátt er hægt að finna óvæntar lausnir og bjarga uppáhaldsgallabuxunum svo dæmi sé nefnt. E.S. Það er meira framleitt af fatnaði en við þurfum á að halda, við kaupum meiri fatnað en við þurfum á að halda og við losum okkur við meira af fatnaði en nauðsynlegt er. Það þarf ekki að vera þannig. Höfundarnir og nöfnurnar Katarina Brieditis og Katarina Evans eru báðar hámenntaðar í textíl og hoknar af reynslu í þeim geira. Sú reynsla endurspeglast í bókinni.
-
Afsláttur!POMPOM #47 - vetur 2023. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. ATH. Nýjustu fréttir eru að þetta verður næstsíðasta tölublað Pompom. Síðasta kemur út í janúar 2024.
-
Afsláttur!POMPOM #45 - sumar 2023. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjón- og heklhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Afsláttur!POMPOM #46 - haust 2023. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Afsláttur!POMPOM #43 - vetur 2023. Nú í stærra broti! Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Afsláttur!Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2019)Mjúkspjalda | 68 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 277 g | Mál: 210 x 260 x 10 mm Átján uppskriftir af fylgihlutum, treflar, húfur, kragar, fyrir haust og vetur frá Kim Hargreaves. Kim, fyrrum aðalhönnuður Rowan, er þekkt fyrir sína kvenlegu, klassísku og stínhreinu hönnun. Hún notar eingöngu Rowan garn í sínum bókum.Rowan garnið sem er notað í þessu hefti: Kidsilk Haze, Kid Classic, Cocoon, Brushed Fleece, Big Wool, Alpaca Classic, Alpaca Soft DK og Softyak DK.
-
Afsláttur!Höfundur: Kim Hargreaves Útgefandi: Kim Hargreaves (2020)
Mjúkspjalda | 68 bls.
Tungumál: Enska Þyngd: 278 g | Mál: 210 x 260 x 7 mm -
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska garn! Pakkningin inniheldur 8 merki, 2 hvít, 2 bleik, 2 græn og 2 svört. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm messinghringjum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.
Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska hunda og ketti! Pakkningin inniheldur 8 merki, 4 með hundum og 4 með köttum. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm svörtum málmhringjum. Hugmyndin kemur frá gömlum teikningum sem sjást á umbúðunum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.
Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
Þessar sveigjanlegu segulklemmur (2 í pakka) eru einföld leið til að geyma alls konar áhöld á sínum stað. Segullinn sem er í sitt hvorum endanum loða hvor við annan eða við alla stálfleti. Notkun: Festið penna við SEGULBRETTIÐ eða VERKEFNAMÖPPUNA, skipuleggðu hringprjónasnúrur, festið UMFERÐATELJARA á uppskriftina, hafið prjónamerki við höndina eða hafið stjórn á hleðslusnúrunni. Það kemur á óvart hve nytsamlegar segulklemmurnar eru. Innihald:
- Sveigjanlegar klemmur með seglum í sitt hvorum enda
- Mál:
- 9 cm x 2 cm
- Tvær segulklemmur
- Litaval:
- Colorful
- Ein í lit Wild Rose (bleikt) og ein í lit Duck Egg (ljósblágrænt)
- Neutral
- Ein í lit Storm (grátt) og ein í lit Linen (fölgrátt)
- Earth Tones
- Ein í lit Clay (leirbrúnt) og ein í Mustard Seed (sinnepsgult)
- Colorful
-
Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.
-
- Mælir prjóna frá 2 - 10 mm.
- Stærð 2,5 cm x 4 cm.
- Spjöldin haldast á sínum stað með pínulitlum seglum.
- Búið til úr 100% náttúrueyðanlegu efni og inniheldur ekkert plast.
- Litaröðin á spjöldunum er tilviljanakennd.
- Notkun: Snúðu spjaldinu út og mátaðu prjóninn í hvert gat þar til þú funnur réttu stærðina.
- Ef prjónamálið blotnar þarf að leyfa því að þorna með spjöldin út á þurrum stað í 1-2 sólarhringa (af því þetta er ekki plast!).
-
Málböndin eru úr umhverfisvænu efni (ekki plast) og koma í sex mismunandi litum: Clay (rauðbrúnt), Linen (beinhvítt), Storm (grátt), Sea Glass (blágrænt), Mustard Seed (gult) og Wild Rose (bleikt). Björtu litirnir tryggja að þú finnir alltaf málbandið í prjónatöskunni. Jarðalritirnir setja fallegan svip á áhöldin þín. Málbandið sjálft er úr málmi með cm/mm og tommum og lengdin er 2 m. Cocoknits leggur áherslu á að nota umhverfisvæn efni í framleiðsluna og forðast plast eins og hægt er. Skelin utan um málbandið er úr PLA sem er 100% náttúruuppleysanlegt efni úr jurtaríkinu. Með því að sleppa lásnum tókst að gera málbandið án plasts og þannig eru líka minni líkur á því að það bili. Hvert málband kemur í endurnýtanlegum poka úr líni. Mál: 6,5 x 5 x 1,3 cm, málbandið er 2 m langt.
-
Afsláttur!Höfundur: Michelle Wang Ritstjórn: Brooklyn Tweed (2017)Mjúkspjalda | 138 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 499 g |
CAPSULE | Michele Wang fyrir Brooklyn Tweed
Þessi bók; CAPSULE frá Brooklyn Tweed beinir sviðsljósinu að prjónhönnun Michele Wang. Þetta er önnur bókin í CAPSULE seríunni, og þar notar hönnuðurinn tweed garnið frá Brooklyn Tweed til að hanna nútímalegar peysur á bæði kynin. Peysurnar eru allt frá því að vera einfaldar og stílhreinar í flóknari mynsturpeysur. Átta uppskriftir, hver annari áhugaverðari, tilvísun á ánægjulegar prjónastundir og frábærar flíkur til að eiga og nota. -
Góður skurðarhnífur með 45mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum.
-
Garn: Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með útprjóni á handarbakinu. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er íprjónaður. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
-
Dásamlega fallegar öskjur undir smáhluti, t.d. prjónamerki, lítil skæri, nálar o.fl. Myndin á lokinu er sett á öskjuna á handverksstæði FIREFLY. Gljáandi yfirborðið er úr resín sem endist lengi. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.
Tvær stærðir í boði:
🐰 Lítil: Lengd 6 cm x breidd 3,4 cm x dýpt 1,2 cm
🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!
Athugið að öskjurnar eru eru tómar!
Hægt að kaupa segul í botninn á öskjunni hér: Firefly SEGULL
-
Dásamlega fallegar öskjur undir smáhluti, t.d. prjónamerki, lítil skæri, nálar o.fl. Myndin á lokinu er sett á öskjuna á handverksstæði FIREFLY. Gljáandi yfirborðið er úr resín sem endist lengi. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.
Tvær stærðir í boði:
🐰 Lítil: Lengd 6 cm x breidd 3,4 cm x dýpt 1,2 cm
🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!
Athugið að öskjurnar eru eru tómar!
Hægt að kaupa segul í botninn á öskjunni hér: Firefly SEGULL
-
Eco Vita Hemp útsaumsefni frá DMC Hampur er náttúrulegt vefjarefni úr jurtaríkinu og hentar vel í útsaumsefni. Áferðin líkist líni/hör. Fáanlegt í fjórum litum og hver bútur er 38,1 x 45,7 cm. Þetta er þéttofið efni og hentar vel frjálsan útsaum og flos. Frábært að sauma út með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu.