1.280kr. – 1.295kr.
Prjónasnúra úr mjúku efni. Snúran er með stuttum prjóni á öðrum endanum til að þræða í gegnum lykkjurnar sem á að geyma. Prjóninum er svo stungið inn í tappa á hinum endanum og hægt að draga snúruna í gegn eins langt og þarf. Öruggt og þægilegt.
Styttri snúran er algjör snilld til að geyma lykkjur í handvegi eða hálsmáli og sú lengri fyrir lykkjur á bol, t.d. þegar peysa er prjónuð ofan frá og mátuð.
Tvær lengdir fáanlegar
- Stutt: 23-41 cm (#3161)
- Löng: 61-91 cm (#3162)