Prjónaveski fyrir sokkaprjóna. Merktur vasi fyrir 14 grófleika, frá 2mm til 6,5mm. Auk þess tveir ómerktir vasar!
Stærð: Hæð 26 cm (lokað), breidd 4o,5 cm x hæð 26 cm (opið).
Mynstur í boði:
Yarn Bombing eftir Jeni Paltiel – Hannað fyrir þá/þær sem elska fjólublátt, mynstrið endurspeglar prjónagraffití menninguna.
Unraveling Daisies eftir Diane Warren – Svart, rautt og hvítt með kattaþema.
Knitted Rows eftir Hanna Mason – Vinir í heimaprjónuðum og hekluðum peysum haldast í hendur.
Alva eftir Maria Tjåland Ødegård – Ný útgáfa af klassíska kindaþemanu í svart/hvítu. Fullkomið fyrir þá sem vilja sem vilja minna áberandi mynstur, en samt sætt.