4.995kr.

Höfundur: Kaffe Fassett

Útgefandi: Taunton Press Inc (2019)

Mjúkspjalda | 152 bls.

Tungumál: Enska

Þyngd: 723 g | Mál: 220 x 280 x 12,7 mm 

Kaffe Fassett’s Quilts in the Cotswolds

Þetta er 21. bútasaumsbók Kaffe Fassetts, en hann hefur verið einn vinsælasti höfundur bóka um bútasaum um árabil. Í þessari bók notar hann nýjustu efnin sem voru til útgáfuárið og velur að útfæra teppin í medallion mynstrum (mynstur sem hverfast um miðju teppisins).

Myndirnar eru teknar í  Hidcote Manor Garden í hinni fallegu Cotswolds sveit. Teppin njóta sín vel þar innan um allan gróðurinn, en Hidcote er einn af mest heimsóttu görðum í Bretlandi.

Medallion bútateppi henta vel fyrir efnin hans Kaffe Fassetts, því uppbyggingin er einföld og höfða til margra. Björtu litirnir í efnunum hans njóta sín vel. Bókin inniheldur 19 teppi. Það fylgja góðar útskýringar, líka fyrir þá sem hafa ekki mikla reynslu í bútasaumi, teikningar og snið.

 

Aðeins 1 eftir á lager

Title

Go to Top