11.995kr.
CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun.
Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar.
Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust.
Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit.
Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm, 4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm.
Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm.
Uppselt