1.595kr.
- Grófleiki: Léttband / DK
- Innihald: 100% extra fín merínóull
- Lengd/þyngd: 120m/25g
- Prjónar: 3,5-4,5 mm
- Prjónfesta: 22 lykkjur og 34 umferðir = 10 x 10cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°C
1.595kr.
COMO TWEED frá Lamana er einstaklega mjúkt og létt garn. Það eru fleiri metrar í hverri 25g hnotu en í garni í sambærilegum grófleika sem er 50g. Peysur úr Como verða því fisléttar og áferðin er örlítið loðin. Þetta garn hentar vel í peysur, húfur, sjöl og trefla. Uppáhaldspeysur barnanna eru úr Como því þeim líður vel í svona léttum og mjúkum flíkum. Como fæst líka einlitt.
Como Tweed tilheyrir SUPERLIGHT garnlínunni frá Lamana. Það er unnið þannig að garnið verður sérstaklega létt. Það kemur flestum á óvart hve þægilegar flíkur úr svona léttu garni eru.
Mán. – fös. kl. 11-17
Lau. kl. 11-15
Lokað sun.
Lokað á lau. júní -ágúst