4.800kr.6.300kr.

Vettlingapakki: Garn + uppskrift + verkefnapoki

Innifalið:

Garn í minni stærð: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle.

Garn í stærri stærð: Bio Merino 2 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle.

Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!

Grunnlitur ljósgrátt og mynsturlitur bleikir og túrkis litir.

Uppskrift er send sem pdf skjal í tölvupósti um leið og pöntunin er afgreidd, en kemur líka útprentuð á íslensku með garninu

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.

Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm.

Vantar þig sokkaprjóna? Smellið hér: Sokkaprjónar.

Smelltu á rétta stærð og smelltu svo á heiti vettlinganna.

Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Guðrún Hannele

STÆRÐIR                    

2 stærðir – minni (stærri)

LENGD OG BREIDD

Stroff 6 (6) cm, belgur 20 (22) cm, samtals 26 (28) cm

9 (10,5) cm mælt þvert yfir handarbak fyrir ofan þumal.

GARN

Grunnlitur: Schoppel Wolle Bio Merino 1 x 50g (150m)

Grunnlitur: Schoppel Wolle Edition 3 1 x 50g (150m)

PRJÓNAR

Sokkaprjónar 12-15 cm, þríprjónar eða þeir prjónar sem ykkur hentar að nota:

2,5 mm fyrir stroffið og 3 mm fyrir belginn og þumalinn.

PRJÓNFESTA

32 lykkjur og 34 umferðir á 3 mm prjóna = 10cm í tvíbandaprjóni.