7.950kr.

Barnateppapakki: Garn + uppskrift + verkefnapoki

Innifalið:

Garn í barnateppið BÁRA: Albertine 4 x 50g/200m frá De Rerum Natura.

Það er val um tvo liti: Aurore (rauðbleikt) og Petite Matin (fölblágrátt).

Albertine er 90% vistvæn merínóull frá Frakklandi og 10% mórberjasilki. Þetta garn er EKKI super wash garn. Við mælum með handþvotti í ylvolgu vatni með ullarþvottalegi (eins og SOAK).

Uppskrift er send sem pdf skjal í tölvupósti um leið og pöntunin er afgreidd, en kemur líka útprentuð á íslensku með garninu

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.

Prjónar: Hringprjónn 80-100 cm 3,5 mm.

Vantar þig hringprjóna? Smellið hér: Hringprjónar.

Smelltu á litinn sem þú vilt og svo á heiti barnateppisins.

UPPSKRIFT/ÚTFÆRSLA                                     

Guðrún Hannele

STÆRР                   

60 cm x 80 cm (auðvelt að stækka og minnka teppið!)

GARN

ALBERTINE frá De Rerum Natura eða sambærilegt garn.

4 x 50 g/200 m

PRJÓNAR

Hringprjónar 80 cm / 3,5 mm.

PRJÓNFESTA

28 lykkjur og 40 umferðir á 3,5 mm prjóna = 10 cm í sléttprjóni

AÐFERÐ

Barnateppið er prjónað fram og til baka á langan hringprjón.