895kr.

Storkskonur eru duglegar að gera uppskriftir endrum og sinnum. Flestar eru klassískar og hægt að prjóna á margar kynslóðir barna. Litavalið sér hvert og eitt ykkar um eftir eigin smekk og e.t.v. tíðaranda.

GRÁMANN

Hönnuður/uppskrift: Storkurinn / Guðræun Hannele

Garn: Hamelton Tweed 1  4 (4) 5 (5) x 50 g í lit G (á mynd grænblátt #04) og  1 x 50 g í lit M (dökkgrátt #16)

Stærðir: 1 ( 2) 4 (6) 8 ára

Sjá prjóna og prjónfestu hér fyrir neðan.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður.

Vöruflokkar: , ,

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Storkurinn / Guðrún Hannele

STÆRÐIR                    

1 ( 2) 4 (6) 8 ára

Yfirvídd   60 (68) 76 (80) 85 cm

Sídd frá hálsmáli   35 (40) 45 (50) 55 cm

Ermalengd frá handvegi   22 (24) 27 (32) 35 cm

GARN

HAMELTON TWEED 1 frá BC Garn eða sambærilegt garn.

4 (4) 5 (5) 6 x 50 g í grunnlit G (á mynd grænblátt #04).

1 x 50 g í lit M (dökkgrátt #16)

PRJÓNAR

Hringprjónn 60 cm 4 mm fyrir stroff á bol.

Hringprjónn 5 mm og 60 cm fyrir bol og axlarstykki.

Hringprjónn 5 mm og 40 cm fyrir efri hluta axlarstykkis.

Sokkaprjónar 4 mm fyrir stroff á ermum.

Sokkaprjónar 5 mm fyrir ermar.

Eða notið þá prjóna sem ykkur hentar en gætið þess að velja réttan grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu.

PRJÓNFESTA

18 lykkjur og 26 umferðir á 5 mm prjóna = 10cm.

AÐFERÐ

Peysan er prjónuð í hring neðan frá.