11.995kr.
Höfundur: Anne Bardsgard
Útgefandi: Museumforlaget (2016)
Harðspjalda | 296 bls.
Tungumál: Norska
Þyngd: 1.420 g | Mál: 220 x 280 x 27 mm
Selbu mittens eða vettlingar frá Selbu eru vel þekktir um allan heim. Þeirra einkenni eru mynstur í andstæðum litum, í svart/hvítu. Bókin fjallar um hvaðan mynstrin koma, hverjir prjónuðu þau og almennt um sögu Selbu vettlingana.
Þessi bók var gerð í kjölfarið á einstakri fingravettlinga- og vettlingasýningu sem var haldin í Sverresborg Trondelag Folkemuseum.
Bókin inniheldur sögu vettlinganna, yfir 500 mynsturteikningar með klassískum áttablaðarósum, snjókornum, blómum, elgjum, köngulóm og kaffibaunum.
Uppskriftir af 35 vettlingum með úrvali af mynstrum fyrir lófa, þumla, stroff og stofn og jafnvel sérstök mynstur þar sem handarbök og lófar mætast. Möguleikarnir á samsetningum eru mjög margir.
Aðeins 3 eftir á lager
