3.195kr.

Kringlóttur útsaumshringur úr tré með góðum festingum, nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Mælt er með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki.

Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.