4.995kr.

Höfundur: Lene Holme Samsøe

Útgefandi: Forlagið (2021)

Mjúkspjalda | 160 bls.

Tungumál: Íslenska

Þyngd: 720 g

Í Prjónastund eru uppskriftir að 32 flíkum; hnepptum og heilum kvenpeysum, sjölum, sokkum og vettlingum. Hér eru einfaldar og fljótprjónaðar peysur en líka flóknari flíkur fyrir vana prjónara. Í bókinni má einnig finna nokkrar uppskriftir að vinsælum peysum sem hingað til hafa aðeins verið til í barnastærðum.

Höfundur bókarinnar, Lene Holme Samsøe, er þekktur hönnuður um öll Norðurlönd. Hún hefur sent frá sér fjölmargar vinsælar prjónabækur, meðal annars Prjónað af ást sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi.

Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir þýddu.

Uppselt