6.995kr.

Höfundur: Lene Holme Samsøe

Útgefandi: Forlagið (2022)

Harðspjalda | 214 bls.

Tungumál: Íslenska

Þyngd: 1.000 g

Flestir sem prjóna á börn þekkja hina dönsku Lene Holme og hennar hönnun. Í þessari bók er að finna uppskriftir af skólapeysum, skírnarkjól, heimferðarsetti og gammosíum svo fátt eitt sé nefnt.

Hér er prjónað af mikilli ást, hvort sem uppskriftin er að hversdagsfötum eða sparilegum flíkum fyrir hátíðleg tilefni.

Í bókinni eru yfir 50 uppskriftir að fallegum og sígildum fötum á nýfædd börn og upp í tólf ára. Miðað er við að vanir jafnt sem óvanir prjónarar geti fylgt uppskriftunum enda eru verkefnin fjölbreytt. Fyrir þá sem halda upp á munstur eins og Dalíu og Ellu eru hér nýjar og skemmtilegar áskoranir á borð við Rósu, Páfugl og Hnetu.

Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir þýddu.

Lene Holme Samsøe er vinsæll og þekktur hönnuður sem hefur sent frá sér fjölmargar prjónabækur, meðal annars Prjónað af ást, Prjónastund og Prjónað á mig og mína sem notið hafa mikilla vinsælda hér á landi.

Uppselt