10.000kr.
Eitt skipti – miðvikudagur
29. janúar kl. 17:30 – 20:30
Styttar umferðir er aðferð (til fleiri en ein) til að búa til upphækkun í prjónaðri flík svo að hún passi betur. Algengast er að þetta sér gert hnakkamegin í hálsmáli á peysum, en stundum líka neðan á bol til að síkka bakstykkið eða á ermum. Einnig til að búa til mynsturprjón.
Styttar umferðir voru mjög mikið notaðar hér áður fyrr þegar peysur voru gjarnan þröngar, aðsniðnar og áttu að passa vel. Svo kom langt tímabil þegar peysur urðu víðar og einfaldar í sniði og þessi aðferðarfræði gleymdist. Það var ekki hefð fyrir því að prjóna lopapeysur með upphækkun á hnakka, því peysurnar voru einfaldlega teygður í form eftir þvottinn. En nú er öldin önnur, því mjög margar uppskriftir gera ráð fyrir styttum umferðum, aðallega til að móta hálsmálið. Þá skiptir engu hvort peysur eru prjónaðar ofan frá eða neðan frá því þetta snýst um að hafa fallegt, vel sniðið hálsmál svo peysan verði klæðileg.
Námskeiðslýsing
Á þessu örnámskeiði leggjum við áherslu á að skilja tilgang styttra umferða (upphækkunar) og lærum eina til þrjár aðferðir eftir áhuga hvers og eins og hvað tíminn leyfir. Það getur verið gott að kunna fleiri en eina aðferð því verkefnið og garnið getur haft áhrif á hversu vel snúningurinn sést og markmiðið er að hann sjáist sem minnst.
- Þýskar styttar umferðir (German Short Rows). Sennilega vinsælasta aðferðin í dag.
- Vefja & snúa styttar umferðir (Wrap & Turn Short Rows). Vel þekkt aðferð og mikið notuð. Gott að kunna því hún sést minnst í garðaprjóni og þar sem mynsturprjón er með brugðnum lykkjum.
- Skuggavaf (Shadow Wrap). Nýleg aðferð til að bæta við í prjóntæknibankann.
Á námskeiðinu eru gerðar prufur í flatprjóni.
Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:
Hringprjóna 3,5-4 mm 60-80 cm.
Nokkrar merkikrækjur.
Garn í prufuprjónið er innifalið!
Kennari: Guðrún Hannele
Myndin sýnir Celeste peysurnar frá Petiteknit og þar sést hvernig hálsmálið er hærra að aftan.
Er á lager