6.995kr.

Höfundur:  Marie Wallin

Útgefandi: Marie Wallin Designs (2024)

Mjúkspjalda | 130 bls.

Tungumál: Enska

Þyngd: 585 g | Mál: 215 x 280 mm

ARAN er fyrsta bókin frá Marie Wallin þar sem hún notar eingöngu garn í aran grófleika (prjónar 4,5 – 5 mm). Innblásturinn kemur, eins og oft áður, frá hefðbundnum Fairisle (Fagureyjar) mynstrum, mynstrum með reistum lykkjum (slétta lykkja prjónuð snúin), og hefðbundnum kaðlamynstrum.  Flestar peysurnar eru í þægilegri hreyfivídd, nema peysurnar ‘Budle’ og ‘Alnwick’, sem eru aðsniðnar.

Það eru sjö uppskriftir, allar prjónaðar í hring, þar af fjórar klipptar upp efir á. Það eru góðar vinnulýsingar í bókinni með myndum sem sýna tvær aðferðir við að klippa upp, með og án saumavélar. Það eri fimm heilar peysur, fjórar hnepptar peysur, eitt vesti og tveir fylgihlutir, alls tólf æðisleg prjónaverkefni!

Berwick is in 3 sizes: S/M/L, XXL/XXL & 3XL

Farne is in 5 sizes: S/M, M/L, L/XL, XXL/2XL & 3XL

Kvenstærðirnar eru S, M, L, XL, XXL, 2XL OG 3XL og passa fyrir ummál 81-86 cm, 91-97cm, 102-107cm, 112-117cm, 122-127cm, 132-137 cm og 142-147 cm.

Uppskriftin Berwick er í 3 stærðum: S/M/L, XXL/XXL & 3XL.

Uppskriftin Farne er í 5 stærðum: S/M, M/L, L/XL, XXL/2XL & 3XL.

Hverri bók fylgir rafbók, það er kóði til að hlaða bókinni niður í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann. Þá er auðvelt að stækka mynstrin þegar prjónað er eftir þeim.

Er á lager

Go to Top