24.995kr.

Prjónasett úr birki sem er sterkur viður og áferðin er rennislétt. Hver prjónaoddur er 12,5 cm langur eða hefðbundin lengd á oddum fyrir lengri snúrur 60 cm +.

Allir LYKKE prjónaoddarnir eru merktir með stærðunum og merkingin endist vel og lengi.

Innihald:
12 oddapör í grófleikum 3,5/3,75/4,0/4,5/5,0/5,5/6,0/6,5/8,0/9,0/10,0/12,0 mm.
5 snúrur – 2 х 60 cm, 2 х 80 cm, 1 х 100 cm.
2 snúrutengi, 4 lyklar (til að losa og herða) og 8 tappar (til að setja framan á snúrurnar þegar lykkjur eru geymdar).
Prjónaveski sem lokast með smellu og vasa fyrir alla smáhlutina.

FRÍ SENDING!

 

 

 

Uppselt

UM LYKKE PRJÓNANA:

Lykke er norska og þýðir hamingja og framleiðandinn telur að þetta prjónasett muni gera ykkur hamingjusöm!

Prjónarnir eru framleiddir úr sléttum, hörðum birkivið með fallega áferð. Endarnir eru með skrúfgangi úr svörtum málmi og þar er stærð hvers prjóns grafin (ekki prentuð) þannig að hún helst og hverfur ekki. Snúrurnar eru sveigjanlegar og liprar.

Prjónaoddasettið inniheldur 12 prjónaoddapör (sjá stærðirnar hér fyrir ofan), og utan um þá er grátt veski til að geyma þá og alla fylgihlutina. Veskinu er lokað með segulsmellu. Í stærri vasanum eru 5 snúrur (2 x 60 cm, 2 x 80 cm og 1 x 100 cm), 4 pinnar til að herða og losa, 2 snúrutengi til að tengja saman snúrur og lengja eða tengja í hring til að geyma lykkjur og 8 prjónatappar til að skrúfa á snúruendana.

Athugið: Lykke vörurnar eru framleiddar með líftíma ábyrgð gegn göllum. Ef það koma upp vandamál má hafa samband við framleiðendur á síðunni www.lykkecrafts.com og fylla út einfalt eyðublað. Nýr hlutur verður sendur án vandræða.

Lykke vörur eru framleiddar í Kathmandu, Nepal. Fyrirtækið styður með stolti efnahagsvöxt og þróum í Nepal. Framleiðendur láta gott af sér leiða í nærsamfélagi Lykke í gegnum starfsmenn fyrirtækisins í Nepal, börn þeirra og fjölskyldur.