4.895kr.

Höfundur: Gréta Sörensen

Útgefandi: Forlagið (2021)

Mjúkspjalda | 141 bls.

Tungumál: Íslenska

Þyngd: 435 g

Í Lopapeysubókinni er kennt á einfaldan hátt að prjóna lopapeysu og uppskriftir eru fyrir börn frá sex mánaða aldri og upp í stærðir fyrir fullorðna. Bókin inniheldur samtals fimm munstur fyrir smábarna- og barnapeysur og sex munstur fyrir kven- og karlapeysur.

Í bókinni er margs konar fróðleikur um prjónaskap, lopa sem hráefni, samsetningu lopalita, frágang og mismunandi útfærslur á íslensku lopapeysunni. Bókin hentar bæði byrjendum í lopapeysuprjóni og þeim sem eru lengra komnir, og er einnig tilvalin fyrir þá sem vilja taka þátt í að móta þessa arfleifð og skapa sínar eigin útfærslur.

Gréta Sörensen hefur áður sent frá sér Prjónabiblíuna sem notið hefur mikillar hylli og var m.a. tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Hún er menntaður prjónhönnuður, vefnaðar- og textílkennari og hefur lengst af starfað við kennslu í mynd- og handmennt og hönnun.

Uppselt