0kr.
Það hefur verið mikill áhugi á leikfangahekli. Næsta námskeið verður í haust. Skráið ykkur endilega til að komast á listann. Um leið og við náum lágmarksfjölda setjum við námskeið í gang.
3 skipti – kl. 18 – 20
Heklnámskeið þar sem kennt er leikfangahekl eftir vinsælu bókinni CUTE CROCHETED ANIMALS eftir Emma Varnam. Bókin fylgir með ásamt 3 hnotum af Volare DK garni, í litum að eigin vali, sem hentar mjög vel í leikfangahekl.
Þetta hefur verið mjög vinsælt námskeið hjá okkur og það er ástæða fyrir því. Þetta eru ótrúlega sæt dýr og mátulega stór, en bókin hefur því miður verið ófáanleg lengi. Okkur tókst að ná í nokkur eintök og bjóðum því loksins aftur upp á þetta námskeið.
Þið lærið alls konar hekltækni, en líka að fylgja hekluppskriftum á ensku.
15% afsláttur í Storkinum á meðan námskeiðið varir.
Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:
Heklunálar 3 – 3,5 mm.
Kennari: Sólveig Sigurvinsdóttir