6.780kr.

Garnpakki – garn + uppskrift á íslensku í peysuna KRÍA frá Novita.

Stílhrein og falleg barnapeysa sem er prjónuð í hring ofan frá.

Stærðir 92/98 (104/110) 116/122 (128/134) cm

Í garnpakkanum eru, auk uppskriftar á íslensku:

3 x 100g af grunnlit

1 x 100g af mynsturlit

Þetta garnmagn dugar í stærðir 92/98 og (104/110). Bætið við 1 dokku í grunnlit fyrir stærðir 116/122 og (128/134).

LINKUR Á GARNIÐ TIL AÐ KAUPA AUKA DOKKU.

Prjónfesta er 21 L / 27 umf = 10 cm

Prjónar: Hringprjónar 40 og 80 cm í 3,5 og 4,5 mm eftir prjónfestu, sokkaprjónar 3,5 og 4,5 mm.

Uppskriftin er eingöngu fáanleg með garnkaupum og það má nota Novita 7 Veljestä Natur  eða 7 Veljestä garnið. Báðar tegundir passa fyrir þessa uppskrift og sama magn þarf í peysuna.

Kría barnapeysu-uppskriftin er á ÍSLENSKU.

Upplýsingar um garnið:

    • Grófleiki:  Grófband / Aran / Worsted
    • Innihald:  70% ull, 30% Tencel
    • Lengd/þyngd:  100 g/200 m
    • Prjónar:  4 – 5 mm
    • Prjónfesta:  18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C
Vöruflokkar: ,

7 Veljestä er vafalaust þekkasta garn sem framleitt hefur verið í Finnlandi og hefur verið mjög vinsælt á meðal prjónara þar. Garnið dregur nafn sitt af þekktri skáldsögu Aleksis Kivi sem kom fyrst út 1870. Sagan er löngu orðin hluti af þjóðarímynd Finna.

7 Veljestä Nature er ný kynslóð af garninu þar sem Tencel er notað til að létta og mýkja. Tencel er umhverfisvænt vefjarefni og niðurbrjótanlegt í náttúrunni. Innihaldið er 70% ull og 30% TENCEL ™ Lyocell -þræðir sem gefa garninu gljáa.

7 Bræður  Nature hentar í alls konar prjóna- og heklverkefni. Grófleikinn er þykkband / aran / worsted.

Ein 100g hnota dugar í fullorðinhúfu.

Garnið er framleitt í Finnlandi.