1.295kr.1.595kr.

Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 10 cm eða styttri og passa fyrir stystu snúrurnar til að mynda 40 cm langan hringprjón fyrir húfu- og ermaprjón eða hálsmál á peysu. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum.

Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er.

Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir.