495kr.
Prjónasnúrur fyrir Knit Pro prjónaoddana. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Snúrurnar fást í lengdum til að mynda 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Hver lengd kemur í sérstökum lit til þæginda fyrir okkur. Einnig er hægt að nota snúrurnar til að geyma lykkjur því það fylgja tveir tappar með hverri snúru, svo og pinni til að festa og losa þegar prjóninn er skrúfaður á. Við mælum með því að nota alltaf pinnann til að losa og festa svo að prjóninn losni ekki þegar prjónað er.
Þá er líka hægt að fá millistykki til að tengi saman tvær snúrur eða tengja eina snúru í hring til að geyma lykkjur.