3.495kr.

Þessi útsaumspakkning er góð kynning á útsaumssporum fyrir þau sem hafa einhverja reynslu í útsaumi.
Hvert spor er prentað á efnið og það er einfalt að fylgja leiðbeiningunum.

Sporin sem þið lærið eru m.a.:

• Varpleggur (Stem Stitch)
• Flatsaumur (Satin Stitch)
• Blómstursaumur (Split Stitch)
• Tunguspor (Buttonhole Stitch)
• Löng og stutt spor (Long & Short Stitch)
• Fræhnútar (French Knot)

Pakkinn inniheldur:
• Áprentað efni úr bómull
• Árórugarn frá DMC
• Útsaumsnál nr. 9
• Hlekkur til að hlaða niður leiðbeiningum
• Áprentaðar umbúðir, tilvalin gjöf!

Þú þarft einnig:
• 15 cm útsaumshring
• Skæri

Mælt með fyrir 12 ára og eldri.

Fullunnið verk er 21,5 x 21,5 cm, passar í 15 cm útsaumshring til að hengja upp.

Aðeins 3 eftir á lager

KIRIKI PRESS ÚTSAUMUR

Kiriki Press er lítið fyrirtæki í Kanada sem leggur áherslu á útsaum fyrir byrjendur og lengra komna. Saumað er út í silkiþrykkt bómullarefni. Vinnulýsingarnar eru mjög góðar, útskýrðar í máli og myndum.

Útsaumssporin sem eru notuð eru bæði fjölbreytt og hefðbundin. Markmiðið hjá Kiriki er að gera útsauminn skemmtilegri, aðgengilegri og þægilegri.

Mynstrin eru á mismunandi erfiðleikastigum, fyrir allt frá byrjendum til þeirra sem vilja meira krefjandi útsaum.

Hér er hægt að hlaða niður bók með verklýsingum á öllum útsaumssporunum frá KIRIKI.