4.840kr.

Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana.

Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn.

Gleener fæst til heimilisnota með góðu handfangi, en einnig í smærri útgáfu fyrir ferðalög. Þá er kamburinn jafnbreiður en án handfangs.

Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru lausu af.

Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur.

 

Er á lager