3.595kr.

  • Grófleiki: Fínband / fingering / 4ply
  • Innihald: 100% mórberjasilki
  • Lengd/þyngd: 250m/50g
  • Prjónar: 2 – 3,5 mm
  • Prjónfesta: 24 – 28 L = 10 cm
  • Þvottur: Handþvottur 30°C

PURE bandið er tilvalið til fyrir ungbarnaföt, sjöl og annan fíngerðan fatnað. Við vonum að þið verðið eins hrifin af PURE bandinu eins og við.

Sagan á bak við bandið
PURE silkið er nýjasta viðbótin við garnlínuna hjá Einrúm. Það hefur verið draumur þeirra frá upphafi að bjóða upp á hreint mórberjasilki. Helstu ástæðurnar eru eiginleikarnir og möguleikarnir sem hreint silki hefur upp á að bjóða. Í öðru garni  er mórberjasilkið tvinnað við ullina en hér nýtur það sín eitt og sér.