15.995kr.

HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA

Pakki með garni frá Einrúm (e-band) og uppskrift á ENSKU. Garnið dugar í stærðir XS, S og M í langerma en í til og með XL í stutterma peysu. Val um stutterma og síðerma útgáfu.

Val um 3 litasamsetningar:

Grunnlitur: Dökkgrátt. Mynsturlitir: dökkrautt og hvítt. Nóg garn fyrir stærðir upp í XL í langerma og 3XL í stutterma peysu.

Grunnlitur: Ljósgrátt. Mynsturlitir: Blátt og dökkrautt. Nóg í M í langerma og L í stutterma.

Grunnlitur:: Ljósbrúnt. Mynsturlitir: Gult og hvítt. Nóg garn fyrir stærðir upp í XL í langerma og 3XL í stutterma peysu.

Allt mjög fallegar litasamsetningar, ekki við öðru að búast frá Einrúm. Frábær gjafahugmynd!

KBG 17 AFI

FRÁ KRISTÍNU BRYNJU:

Ég kalla þessa peyslu KBG 17  AFI. Föðurafi minn, afi Arthúr, var Norðmaður. Hann ólst upp í Sandnessjöen í norður Noregi en flutti til Íslands árið 1925. Móðir hans, sendi syni sínum peysu í jólagjöf í kringum 1950. Það var falleg, dökkblá „kofta“ með hefðbundnu norsku mynstri sem hún hafði prjónað handa honum. Ég man eftir að hafa dáðst að þessari vel prjónuðu peysu sem unglingur. Ég man að mér fannst peysan ekki vera með réttu sniði.  Ég ákvað að prjóna peysuna stóra og pokalega eins og þá þótti flottast. Með hjálp ömmu Katrínar endurgerði ég peysuna hans afa, breytti sniðinu, en hélt einkennum hennar. Núna, 40 árum síðar, verður peysan hans afa mér aftur innblástur. Þessi peysa er prjónuð með berustykki eins og hefðbundin íslensk lopapeysa og greinilega má sjá hvaðan mynstrið er ættað, sem sagt frá „koftunni“ hans afa Arthúrs.

AÐFERÐ

Byrjað er við hálsmálið og peysan er prjónuð út í eitt ofan frá og niður

STÆRÐIR: (XS, S, M) (L, XL, 2XL) (3XL, 4XL, 5XL) 

Yfirvídd: (91, 98, 103) (107, 116, 119) (128, 131, 145) cm
Hálf yfirvídd: (45,5, 49, 51,5) (53,5, 58, 59,5) (64, 65,5, 72,5) cm
Sídd frá handvegi, med stroffi: + / – 42 cm
Ermalengd, stuttar ermar með stroffi: + / – 19 cm
Ermalengd, langar ermar með stroffi: + / – 46 cm

 STUTTERMA PEYSA

Aðallitur A: (200, 200, 200) (250, 250, 300) (300, 350, 350) g
Mynsturlitur B: (50, 50, 50) (50, 100, 100) (100, 150, 150) g.
Mynsturlitur C: (50, 50, 50) (50, 50, 50) (50, 50, 50) g.

LANGERMA PEYSA

Aðallitur A: (250, 250, 250) (300, 300, 350) (350, 400, 450) g.
Mynsturlitur B: (50, 50, 50) (50, 100, 100) (100, 150, 150) g.
Mynsturlitur C: (50, 50, 50) (50, 50, 50) (50, 50, 50) g.

PRJÓNAR:

Hringprjónar 3 mm, 60 cm langir og 3,5 mm, 40 og 60 cm langir. Sokkaprjónar 3 mm og 3,5 mm (eða langir hringprjónar fyrir „Magic loop knitting“).

#einrumAFI

Title

Go to Top