14.395kr.
Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem notað er (líkist hálfu krosssaumsspori).
Hönnuður: Magie Hollingworth
Stærð: 38 cm x 28 cm
Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.
Aðeins 2 eftir á lager
EHRMAN útsaumspakkar
Ehrman eru þekkt fyrir fallega hönnun á útsaumi, bæði hefðbundnum og nútímalegum. Margir hönnuðir vinna fyrir þau, hver með sinn einstaka stíl. Á meðal þeirra er Magie Hollingworth. Nánar um hana hér.
Um útsaumspakkana
Myndirnar eru saumaðar á ámálaðan stramma, nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem er notað. Útsaumsgarnið er úr 100% ull. Þéttleikinn á sporunum er mismunandi eftir púðum. Við hvern púða kemur fram hver hönnuðurinn er, stærð á tilbúnum púða, þéttleikinn á sporunum.
Oftast er saumað með einföldu ullargarni, en í einhverjum tilfellum er notað tvöfalt garn þegar stramminn er grófari. Þá eru færri spor á 10 cm. Kaffe Fassett heldur t.d. upp á grófari púðana því þá gengur hraðar að sauma þá.
Ullargarnið sem fylgir er sett saman í knippi, oft ólíkir litir saman svo auðveldara sé að greina á milli lita. Þess er gætt að reikna vandlega út hve mikið garn fer í hvern púða svo nægilegt magn af garni fylgi. Á það skal bent að garnmagnið sem fylgir gerir ráð fyrir að saumað sé eftir meðfylgjandi leiðbeiningum.
-
Afsláttur!
FELICITY HALL – Alpha II
16.995kr.Original price was: 16.995kr..10.197kr.Current price is: 10.197kr.. -
Afsláttur!
FELICITY HALL – Alpha I
16.995kr.Original price was: 16.995kr..10.197kr.Current price is: 10.197kr.. -
Ehrman – OWL útsaumspúði
17.360kr.