17.750kr.

POSY OF FLOWERS útsaumspúði eða mynd

Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem notað er (líkist hálfu krosssaumsspori). Má líka nota sem veggmynd.

Hönnuður: Elian McCready

Stærð: 41 cm x 41 cm

Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.

Aðeins 2 eftir á lager

EHRMAN útsaumspakkar

Ehrman eru þekkt fyrir fallega hönnun á útsaumi, bæði hefðbundnum og nútímalegum. Margir hönnuðir vinna fyrir þau, hver með sinn einstaka stíl. Einn þeirra var Elian McCready. Hann stúderaði blómamálverk gömlu meistaranna í Hollandi og hefur hannað nokkra listafallega útsaumspúða og/eða veggmyndir.

Um útsaumspakkana

Myndirnar eru saumaðar á ámálaðan stramma, nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem er notað. Útsaumsgarnið er úr 100% ull.  Þéttleikinn á sporunum er mismunandi eftir púðum. Við hvern púða kemur fram hver hönnuðurinn er, stærð á tilbúnum púða, þéttleikinn á sporunum.

Oftast er saumað með einföldu ullargarni, en í einhverjum tilfellum er notað tvöfalt garn þegar stramminn er grófari. Þá eru færri spor á 10 cm. Kaffe Fassett heldur t.d. upp á grófari púðana því þá gengur hraðar að sauma þá.

Ullargarnið sem fylgir er sett saman í knippi, oft ólíkir litir saman svo auðveldara sé að greina á milli lita. Þess er gætt að reikna vandlega út hve mikið garn fer í hvern púða svo nægilegt magn af garni fylgi. Á það skal bent að garnmagnið sem fylgir gerir ráð fyrir að saumað sé eftir meðfylgjandi leiðbeiningum.