1.195kr.

Vöruflokkar: ,

DMC perlugarn (Cotton Perlé) er hágæða útsaumsgarn úr 100% langþráða, merseríseraðri bómull. Garnið er spunnið þannig að það myndar þéttan, kringlóttan þráð með fallegum, silkimjúkum gljáa sem gefur útsaumi skýra áferð og mikla dýpt í litum.

Í perlugarni er ekki hægt að kljúfa þráðinn. Það hentar sérstaklega vel í skrautsaum, harðangur, úttalin spor, frjálsan útsaum, myndsaum og aðrar aðferðir þar sem áferð og form skipta máli.

Garnið er sterkt, slitþolið og heldur lögun sinni vel við notkun.

DMC perlugarn þolir þvott í allt að 60°C heitu vatni og litirnir halda sér vel við réttan þvott.

Lengd í 10g ca 80m.