425kr.

Þetta er útsaumsgarn úr 100% lífrænni ull. Ullin er lituð með náttúrulegum litum sem eru unnir úr valhnetum, rabbarbara, indigó og eini. Litapallettan er sérlega falleg sem auðveldar val á litum í útsaumsverk.

Útsaumgarnið hefur jafna áferð (er ekki misþráða) og er hæfilega snúðlint og hentar því afar vel í alls kyns útsaum, vefnað og fataviðgerðir. Tvinnað garnið er notað eins og það er (ekki hægt að kljúfa). Grófleikinn er u.þ.b. sá sami og 3 þræðir af árórugarni.

  • Woolmark vottað – góð ending, er litekta, dofnar ekki
  • 100% lífræn ull (af fé sem er ekki dindilklippt)
  • 60 náttúrulegir litir í boði
  • Hver dokka er með 16 m
  • Handþvottur við 30°C