10.995kr.

Della Q sokkaprjónaveskin koma skipulagi á sokkaprjónana. Það rúmar mikið en er  samt hæfilega stórt til að taka með í ferðalagið.

Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki rati í réttan vasa. Það eru fjórtán vasar merktir með 2 mm upp í 6,5 mm og að auki eru tveir ómerktir vasar.

Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Þetta er eitt vinsælasta prjónaveskið frá Dellu Q enda kemst ótrúlega mikið í það.

Stærð:

Lokað: 16,5 x 26 cm
Opið: 50 cm x 47 cm

Linen línan – Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!

DELLA Q er bandarískt merki en vörurnar frá þeim eru framleiddar í Vietnam í fyrirtæki sem var stofnað til að styðja við konur og fjölskyldur þeirra. Í dag, eftir áralangt samstarf, er fyrirtækið enn starfandi með þar sem 6 konur sem eru allar fyrirvinnur sjá um framleiðsluna. Hjá Dellu Q fara saman gæði, góð hönnun, notagildi og samfélagsleg ábyrgð. Storkurinn hefur selt vörur frá Dellu Q í meira en áratug og mælum heilshugar með þeirra vörum.