Della Q hring- og sokkaprjónaveskin koma skipulagi á prjónana. Hver vasi er merktur svo að hver grófleiki ratar í réttan vasa. Það komast nokkrir hringprjónar í hvern vasa, því við eigum jú oftast mismunandi lengdir í hverju númeri. Svo eru vasar til hliðar fyrir  sokkaprjónana. Það eru tólf vasar merktir með númerum fyrir hringprjóna og tveir ómerktir. Það eru 14 vasar merktir fyrir sokkaprjónana og fjórir ómerktir. Tveimur vösum er lokað með rennilás fyrir prjónamerkin, málbandið, nálar eða annað. Það kemst mikið í þetta veski og þá er allt á vísum stað!

Linen línan – Ytra byrðið er úr lín (hör) efni og inna byrðið úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!

DELLA Q er bandarískt merki en vörurnar frá þeim eru framleiddar í Vietnam í fyrirtæki sem var stofnað til að styðja við konur og fjölskyldur þeirra. Í dag, eftir áralangt samstarf, er fyrirtækið enn starfandi með þar sem 6 konur sem eru allar fyrirvinnur sjá um framleiðsluna. Hjá Dellu Q fara saman gæði, góð hönnun, notagildi og samfélagsleg ábyrgð. Storkurinn hefur selt vörur frá Dellu Q í meira en áratug og mælum heilshugar með þeirra vörum.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.