795kr.

Debbie Bliss er einn þekktasti prjónhönnuður Bretlands. Hér er uppskrift af peysu með kaflamynstri. Þrjár stærðir.

Peysan er prjónuð í stykkjum, fram og til baka og saumuð saman. Reyndir prjónarar geta mögulega breytt henni í hringprjón.

Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU.

Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst frítt.

 

Aðeins 3 eftir á lager

Hönnuður Debbie Bliss

Stærð sem passar ummáli 81-86 (92-97) 102-107 cm (mælt þétt)

Garn

Luxury Tweed Aran frá Debbie Bliss (50g/85m) eða sambærilegt garn.

7 (8) 9 x 50 g af lit A.

4 (5) 6 x 50 g af lit B.

Prjónfesta

18 L & 24 umf = 10 cm í sléttprjóni á 5 mm prjóna.

Prjónar

Hringprjónn 80 cm í þeim grófleika sem þarf til að ná prjónfestunni.
Ráðlögð prjónastærð: 4,5 og 5 mm.