24.795kr.

Strekkingamotturnar frá Cocoknits gera lífið auðvelt fyrir þá sem prjóna sjöl, dúka eða annað sem þarf að strekkja. En þessar mottur er líka hugsaðar sem undirlag þegar leggja á flík til þerris eftir þvott.

Yfirborðið á mottunum er með örlitlar bárur þannig að efni/prjónavoð loðir aðeins við sem gerir vinnuna auðveldari. Loft kemst líka undir flíkna sem flýtir fyrir þurrkun.

Hægt er að raða mottunum saman á mismunandi veg eftir stærð og lögum þess sem á að strekkja eða þurrka.

Bakhliðin er vatnsheld og þannig er ekki hætta á að bleyta fari í gegn.

Innihald:

  • 18 mottur sem eru hver um sig 30 cm x 30 cm.
  • 40 T-pinna úr ryðfríu stáli.
  • Köflóttur dúkur sem er 120 x 120 cm. Hver reitur er 2,5 cm sem auðveldar að leggja flík í rétt mál.
  • Taska úr jútatrefjum fylgir sem gott er að geyma allt í.

Er á lager