340kr.

ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egýpskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í.

ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda.

ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni.

Vöruflokkar: ,