18.995kr.

addiClick Novel Lace Long hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace). Þá eru Novel prjónarnir frábrugðnir öðrum hringprjónum því prjónarnir eru hrjúfir viðkomu eða hamraðir. Þessir áferð veldur því að auðveldara er að ná gripi á þeim og lykkjurnar renna ekki eins vel. Það gagnast þeim sem halda lausar um prjónana og vilja prjóna fastar. Þessa odda er hægt að nota fyrir snúrur sem mynda 60cm eða lengri hringprjóna.

Það fylgja með 3 addiSOS snúrur (sjá nánar neðar), liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 60cm, 80cm og 100cm.  Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts.

addiClick Novel prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er.

Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum (með sléttri áferð), bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar.

Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað.

Uppselt

Þessu prjónasetti fylgja addiSOS snúrur sem eru eins og aðrar snúrur nema það er lítið gat beggja vegna þar sem samskeytin eru. Götin eru til að þræða fíngert garn eða þráð í gegnum og hnýta. Síðan er umferðin prjónuð eins og venjulega. Þráðurinn er losaður og hnýttur saman. Ef villa uppgötvast er snilld að geta sleppt lykkjunum af prjóninum, rakið upp og lykkjurnar sitja öruggar á þræðinum. Þetta þarf svo að endurtaka reglulega svo ekki þurfi að rekja mjög langt niður í hvert sinn, t.d. á 10-20 umferða fresti. Það er upplagt að nota þessa aðferð við alls konar gataprjón og klukkuprjón sem getur verið erfitt að rekja upp.