995kr.

Í þessari uppskrift er prjónað í hring út frá miðju. Byrjað er með sokkaprjónum en síðan skipt yfir í hringprjón, fyrst 40-60 cm og síðan lengri þegar að lykkjum fjölgar.

Prjóntækni: Slétt lykkja, brugðin lykkja, uppsláttur, úrtaka til vinstri, úrtaka til hægri.

Uppskriftinni fylgja bæði mynsturteikningar fyrir gataprjónið  svo og ítarleg vinnulýsing fyrir þau sem vilja frekar prjóna eftir texta.

Uppskriftin er á íslensku.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Einnig er hægt að smella á slóð sem er í tölvupósti sem sendur er eftir kaupin.

HÖNNUN                                     
Anniken Allis

ÞÝÐING-ÚTFÆRSLA
Guðrún Hannele

STÆRÐ
Um 66 x 66 cm

GARN
5 x 50g (samtals 625 m).
VOLARE DK merínóull frá Storkinum.
Eða sambærilegt garn.
Ath. ef teppið er prjónað lausar fer meira garn.

PRJÓNAR
4 mm sokkaprjónar
4 mm 60-100 cm hringprjónn.
Veljið réttan grófleika af prjónum til að fá rétta prjónfestu.

PRJÓNFESTA
18 lykkjur og 35 umferðir = 10 cm með 4 mm prjónum í mynsturprjóni.
Ef prjónfestan stenst ekki getur teppið orðið stærra eða minna.

AÐFERÐ
Barnateppið er prjónað í hring út frá miðju, fyrst með sokkaprjónum og síðan með hringprjóni, í lengd eftir þörfum.