Felted Tweed hefur verið framleitt um árabil og það er komin mikil og góð reynsla á það. Þetta er uppáhalds Rowan garn margra skiljanlega. Felted Tweed er einstaklega létt (og drjúgt), hefur fallega tvíd áferð og er til í ótrúlega mörgum fallegum litum sem auðvelt er að raða saman. Eiginleikar garnsins og litaúrval gera það tilvalið í tvíbandapeysur. Margar uppskriftir frá Rowan eru í boði og Marie Wallin er þar fremst hönnuða að okkar mati, með sínar klassísku tvíbandaprjónuðu peysur. Margar þeirr eru algjört augnayndi. Felted Tweed hentar líka mjög vel fyrir hekl.
Litir #200 til #205 voru sérstaklega valdir af Kaffe Fassett fyrir Rowan.