17.500kr.
3 skipti – ÞRIÐJUDAGAR
kl. 18 – 20
18. feb., 25. feb. og 4. mars 2025
Heklaðar dúllur hafa fyrir nokkru gengið í endurnýjum lífdaga. Fyrir utan hinar klassísku hekluðu dúllur til að setja saman í minni og stærri teppi, þá eru dúllur einnig notaðar til að hekla peysur, töskur o.m.fl.
Það er hægt að fara margar leiðir í dúlluhekli og jafnvel í að setja þær saman. Á þessu námskeiði mun Sólveig heklkennari sýna ykkur nýja leið til hekla saman dúllur. Auk þess mun hún fara í alla þá tækni sem þarf til að hekla mismunandi dúllur.
Litríkt og skapandi verkefni er markmiðið.
Garn í prufuhekl er innifalið.
15% afsláttur í Storkinum á meðan námskeiðið varir.
Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:
Heklunálar 3,5-4 mm.
Kennari: Sólveig Sigurvinsdóttir
Er á lager