3.995kr.

Búðu til fallegt skraut á jólatréð!
Handgert skraut sem verður að erfðagrip. Það er þegar búið að klippa út bútana og prenta útlínurnar sem saumað er eftir.

Innifalið:

  • Tilsniðnir filtbútar úr ullarblöndu
  • acid-free board
  • Skref fyrir skref leiðbeiningar
  • DMC árórugarn
  • Japanskur útsaumsborði
  • Nálar
  • Hlekkur á PDF skjal með útsaumssporum

Erfiðleikastig: Hentar þeim sem hafa grunnþekkingu í útsaumi. Aldur 12 +.

Þú þarft einnig:

  • Útsaumsskæri
  • Tvinni til að þræða (valfrjálst)

Aðeins 2 eftir á lager

KIRIKI PRESS ÚTSAUMUR

Kiriki Press er lítið fyrirtæki í Kanada sem leggur áherslu á útsaum fyrir byrjendur og lengra komna. Saumað er út í silkiþrykkt bómullarefni. Vinnulýsingarnar eru mjög góðar, útskýrðar í máli og myndum.

Útsaumssporin sem eru notuð eru bæði fjölbreytt og hefðbundin. Markmiðið hjá Kiriki er að gera útsauminn skemmtilegri, aðgengilegri og þægilegri.

Mynstrin eru á mismunandi erfiðleikastigum, fyrir allt frá byrjendum til þeirra sem vilja meira krefjandi útsaum.

Hér er hægt að hlaða niður bók með verklýsingum á öllum útsaumssporunum frá KIRIKI.