15.000kr.
Eitt skipti – 23. september
Miðvikudagur kl. 17:30 – 20:3o
Falleg merki með perlusaumi. Hægt að festa t.d. á veski eða jakka.
Námskeiðslýsing
Við saumum barmmerki með Miyuki perlum frá Japan.
Förum yfir spor og aðferðir við perlusaum.
Saumað er beint á filtefni og ekki þarf að nota útsaumshring.
Val um nokkrar gerðir af merkjum.
Hafa meðferðis eða kaupa á staðnum:
Útsaumsskæri.
Góð gleraugu ef þið þurfið, perlurnar eru mjög litlar.
Allt efni er innifalið.
Kennari: Magna Rún
Greiðsluskilmálar vegna námskeiðsgjalda
Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið er fellt niður endurgreiðum við öll námsskeiðsgjöld að fullu.
Ef skráður þátttakandi á námskeiði forfallast og kemst ekki á námskeiðið þá þarf tilkynning að berast Storkinum með tölvupósti á netfangið [email protected] eigi síðar en 48 klukkustundum (tveimur sólarhringum) áður en námskeið hefst. Ef tilkynning berst síðar áskilur Storkurinn sér rétt til að innheimta 10% af námskeiðsgjaldi vegna umsýslu.
Er á lager



