Price range: 2.695kr. through 2.995kr.
Novel sokkaprjónarnir frá Addi eru krómlitaðir, framleiddir úr látúni (messing).
Eins og Novel hringprjónarnir, eru þeir góðir fyrir þau sem vilja prjóna fastar og/eða jafnar. Prjónarnir reyna minna á hendurnar og liðamót.
Prjónarnir henta fyrir sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál.
Allir málmprjónar frá Addi eru nikkelfríir.
- Vegna áferðarinnar er auðveldara að halda á prjónunum
- Prjónarnir renna ekki auðveldlega úr lykkjunum
- Það er auðveldara að prjóna jafnar
- Oddarnir henta fyrir krefjandi prjónaverkefni
Allir prjónarnir eru merktir með stærðunum.
Framleiddir í Þýskalandi.


