2.195kr. – 3.195kr.
Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki.
Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst.