- 10 stk. lítill: 8 mm - 10 mm.
- 10 stk. stór: 12,75 mm - 19 mm.
-
Afsláttur!Nálageymslan er hönnuð fyrir handsaum, þá sem handstinga bútasaumsteppi eða annað. Hægt er að geyma 10 þræddar nálar í geymslunni. Handhægt og flýtir fyrir að hafa nálarnar tilbúnar og þræddar. Glært lok fylgir til að passa að allt haldist á sínum stað þegar geymslan er ekki í notkun. Þessi græja fær góð meðmæli frá þeim sem hafa prófað.
-
Afsláttur!POMPOM #16 - vor 2016. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Afsláttur!POMPOM #13 - sumar 2015. Árstímabundin tímarit frá Bretlandi, uppfull af áhugaverðri prjónhönnun. Ritstjórarnir velja til samstarfs mismunandi hönnuði hverju sinni og reyna að hafa gott úrval af peysum og fylgihlutum. Vel gerðar uppskriftir, klassískar í bland við nýstárlegar. Eitthvað fyrir alla! Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að POMPOM tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að POMPOM kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur.
-
Það er fullkomið að nota CANARD Bouclé garnið í þessa uppskrift. Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU. Ef uppskriftin er keypt ein og sér veljið þá valkostinn að sækja í Storkinn og við sendum uppskriftina frítt.
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á ENSKU. Ef uppskriftin er keypt ein og sér veljið þá valkostinn að sækja í Storkinn og við sendum uppskriftina frítt.
-
Bambus sokkaprjónarnir koma í tveimur lengdum; 15 cm sem er ágæt lengd fyrir vettlinga-, sokka- og barnapeysuermar. 20 cm sem eru góðir fyrir ermaprjón og allt annað sem á að prjóna í hring eins og hálsmál, húfur o.fl. Oddarnir eru góðir þar sem þeir mjókka með aflíðandi halla. Það er gott að beita þeim í prjóni með alls konar garn. Bambusprjónar er léttir og mörgum finnst betra að nota ljósa prjóna. Bambus er stekt efni og svignar frekar en brotnar þegar reynir á þá. Byrjendum, sem hættir til að prjóna laust, hentar vel að nota bambusprjóna. Þá næst betra grip og lykkjurnar láta betur að stjórn.
-
Olnbogabætur úr mjúku rúskinni svo peysurnar og/eða jakkarnir endist lengur. Til í nokkrum litum. Með gataröðmmeð fram brún til að auðvelda saumaskapinn. Koma tvær saman í pakkningu. Það er upplagt að nota Laine St. Pierre stoppugarnið til að festa bæturnar.